Asparlaut 24-26, 230 Keflavík
69.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
98 m2
69.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
0
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
38.050.000

Eignasala kynnir til sölu: 
Asparlaut 24-26
Birtar stærðir: 98,9 - 190,5fm 
Nýjar íbúðir í 5 hæða blokk í Hlíðahverfi.
Væntanleg afhending í Júní/Júlí 2024.
Verð: 69.500.000 til 118.500.000

3-4 herbergja íbúðir með eða án bílageymslu og bílskúrs. 
Skilast fullkláruð að undanskyldum gólfefnum í alrými og herbergjum.
Stærri íbúðir með 2 baðherbergjum.

nánari lýsing: 

Eldhús: innrétting frá GKS og að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða í hnotulit eða í dökk gráum lit. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá GKS, vaskur verður í borðplötu. Einnig mun fylgja Bora helluborð með innbyggðu sogi, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með álklæddum fronti ásamt innbyggðum kæliskáp frá Siemens. 
Baðherbergi: Á baðherbergi er flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft sem og málaðir. Flísar koma frá Flísabúðinni. Innrétting frá GKS verður að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða í hnotulit eða dökk gráar. Borðplötur eru úr gráu plasti. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Handlaug eða handlaugarskál ásamt hitastýrðu blöndunartæki verður í innréttingu eftir því sem við á frá GKS. Handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Byko. 
Þvottarhús: Í þvottarhúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá GKS úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Borðplata verður úr plasti. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottarvél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. 
Geymsla: steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist steyptir eða hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum. Rafmagnstengill í sérgeymslu.
Bílskýli: Bílgeymsla er í opnu bílskýli á milli húsa. Veggir og loft eru steypt og ekki meðhöndluð frekar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. 
Bílskúrar: fylgja ákveðnum íbúðum. Veggir og loft slípuð, grunnuð og máluð. Epoxy verður á gólfum bílskúra. Skolvaskur fylgir hverjum bílskúr.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 90a í síma 420-6070 [email protected]  og  [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.


Upplýsingar veitir:
Bjarni Fannar Bjarnason 773 0397 - [email protected]
Júlíus M. Steinþórsson 899-0555 - [email protected]
Jóhannes Ellertsson 864-9677 - [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.