Akurbraut 28, 260 Njarðvík
85.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
133 m2
85.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
60.570.000
Fasteignamat
70.300.000

Eignasala kynnir í einkasölu:
Akurbraut 28, 260 Reykjanesbær,
Mikið endurnýjað og breytt 3 herberja raðhús með bílskúr og tveimur sólpöllum.
birt stærð eignar er 133.7 fm., þar af er íbúð skráð 104,0m2 og bílskúr 29,7m2

Nánari lýsing eignar:
Anddyri með flísum og fataskápum, úr anddyri er gengið í þvottahús með flísum á gólfi og góðum innréttingum og vaski.
Þaðan er inngengt í bílskúr, en hluti af honum hefur verið tekinn undir fataherbergi.  Gólf í bílskúr flísalagt, rafdrifinn hurðaopnari.
Úr anddyri er gengið inní stofu og borðstofu og opið eldhús sem hefur verið stækkað með því að taka út eitt herbergi.
Eldhús er með nýlegum háglans innréttingum og eyju. Plastlögð borðplata, flísar milli efri og neðri skápa. Nýlegt harðparket á gólfum
Úr eldhúsi er útgegnt á góða sólpall.
Baðherbergi með nýjum stutuklefa, flísalagður sturtubotn. Flísar á gólfum og veggjum.
Vegghengt salerni, handklæðaofn og góð innrétting.
Stórt herbergi með nýlegu harðparketi, var hjónaherbergi.  Skápar nú í bílskúr.
Stofa og borðstofa með nýlegu harðpakerti, sólskáli með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi innaf sólskála með nýlegu harðparekti og fataherbergi.
Úr sólskála er gengið út á uþb. 80m2 sólpall á móti suðri.
Yfirbyggður heitur pottur á palli.
Gólfhiti í allri eiginni.
Opið svæði að fyrir framan hús.



Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 90a í síma 420-6070 eða [email protected], [email protected] og [email protected] 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. Geymsluskúr,. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.