Hringhamar 9, 221 Hafnarfjörður
69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
84 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2023
Brunabótamat
66.160.000
Fasteignamat
67.950.000

eignasala.is kynnir eignina Hringhamar 9, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-9151 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Íbúð 102: 84,20 fm 3ja herbergja íbúð á neðstu hæð með stæði í bílageymslu. 
"aukin lofthæð"

Frekari upplýsingar um eignina:
Gólfefni:  fiskibeina harðparket úr Parka nema í baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.

Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.

Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft

Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi fyrir íbúðina. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.

Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.

Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Hægt er að setja upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu.

Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. 
Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.

MótX ehf. er byggingaraðili. MótX ehf. 

frekari upplýsingar inn á hringhamar.is

Nánari upplýsingar veitir Bjarni Fannar Bjarnason , í síma 7730397, tölvupóstur [email protected].

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.